Athyglisbrestur á hæðsta stigi
Djöfull er erfitt að eiga svona dag. Ég er búin að vera í svo rokna stuði undanfarið og áorkað á við tíu! svo kemur.. vonandi einn.. dagur sem er ekkert að gerast. ég er búin að vera með svo mikin athyglisbrest sem mest getur í dag!! Get lífsins ómögulega komið mér að verki! Er sem sagt búin að vera að reyn að setja kjöt utaná þessa beinagrinds ritgerð sem ég er að vinna með.. en nei.. ég hef meira leigið með ennið á skrifborðinnu en að hamra á lyklaborðið!! Ákvað að fara út í hádeginu í þeirri von að allt myndi smella eftir ferskt loft og annað umhverfi. Fór í hagkaup og náði mér í "heilsunammi" .... er sem sagt búin að belgja mig ut af þessu og hef orðið latari með hverri hnetunni!! Ég skaut mig í fótin í byrjun sumars með því að segja dyrinu frá söngleiknum fame.. þar sem núna eru loka sýningar var ekki um annað að velja en að fara. Við erum sem sagt að fara í kvöld ásamt fylgdarliði. Það getur verið svarið!! mig langar svo ekki að fara að það er að eyðileggja dagin fyrir mér!! aaaaammmm! kanski er ég líka bara að reyna að finna afsökun fyrir þessari ofboðslegu leti :) jæja þetta gengur ekki!!! Áfram nú gamla´mín ! :)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home